|
MINNINGARSÍÐUR UM FALLEGA DRENGI
|
12.08.2007 21:53:56 / soleygunn
Hello
Sumarið alveg að verða búið og skólinn að fara að
byrja aftur. Sumarið er búið að vera svo fljótt að líða, þar að
segja er tíminn búinn að vera svo fljótur að líða. Maður finnur það
þegar maður er búin að eignast barn. Gullmolinn okkar er að verða
16 mánaða og mér finnst eins og hann hafi fæðst í gær. Samt skrýtið
því að mér finnst eins og ég hafi alltaf átt hann 
Tanía og Indi vinafólk okkar áttu yndislega
stúlku 8 ágúst síðastliðinn. Hún fæddist 17 merkur og 55
cm. Elsku Tanía og Indi, innilega til hamingju með
prinsessuna, hún er algjör gullmoli.
Gunnar Freyr er að fara í nekirtlatöku og ástungu
á eyrun á miðvikudaginn. Við eigum að mæta klukkan hálf 11 í
Reykjavík. Finnst það svolítið seint því að hann á áð fasta frá
klukkan 4 um nóttuna. Það verður örugglega mjög erfitt því að hann
yfirleitt vaknar klukkan 7 og vill fá að borða strax. Þetta verður
vonandi ekkert mál því að Gunnar Freyr er alltaf svo duglegur

Jæja, vildi bara láta vita aðeins af
mér.
Bæjó
»
09.07.2007 20:07:01 / soleygunn
Sumarfríið búið og sumarið rétt byrjað
Sumarfríið var fimm vikur og mér fannst eins og að ég hafi verið í
fríi í eina viku. Er samt glöð að vera byrjuð aftur að vinna, er nú
búin að vera í svo löngu fríi (fæðingarorlofi).
Leikskólinn hans Gunnars Freys fer í fimm vikna
sumarfrí á morgun og það er heldur leiðinlegt að vera ekki á
sama tíma í fríi. Svona er þetta bara og verðum við bara að gera
sem skemmtilegast úr því Við erum heppinn að Doddi á 2 vikur í
fæðingarorlof eftir og ætlar hann að taka 50 % í mánuð, þannig að
ég fer að vinna og þegar ég kem heim fer hann að vinna. Þetta
verður því notalegt og gott fyrir Gunnar Freyr að þurfa ekki að
vera í pössun hér og þar 
Í sumarfríinu málaði ég herbergið hans Gunnars
Freys og hann byrjaði að sofa í sínu herbergi. Hann er rosalega
sáttur við það Við fórum til læknis um daginn vegna þess að
Gunnar Freyr er búinn að vera með svo mikinn vökva í eyrunum og
hann á að fara í nefkirtlatöku og á að taka allann vökvann úr
eyrunum. Við eigum að mæta 15 ágúst. Vonandi mun honum líða betur
vegna þess að þetta er að pirra hann mikið.
Gunnar Freyr er farinn að labba út um allt
Hann er kannski aðeins að flýta sér vegna þess að þegar hann er að
labba hleypur hann nánast. Það er ekki alveg nógu gott vegna þess
að hann er alltaf að detta og er aldrei einn dagur án þess að
hann sé með margblett, kúlu eða glóðurauga. Ég er aðeins farin að
venjast þessu, var rosa hrædd að hann myndi slasa sig mikið en nú
er hann sjálfur bara farinn að standa upp og segir Æ, Æ. Bara
sætastur
Sumarkveðja Sóley
»
07.06.2007 21:01:12 / soleygunn
Hello Hello.
Skólinn búinn og sumarið byrjað, þó svo að veðrið sé ekki alveg
eftir pöntun. Það hlýtur að fara að koma gott veður. Ég er búin að
fá einkunnirnar mínar og gekk mér bara ágætlega. Tók reyndar ekki
eitt próf en ég ætla að taka það í ágúst. Ég fékk 7 í Andlegum og
líkamlegum þroska barna. Fékk 7,5 í Þroskaþjálfafræði og
starfsvettvangur og svo fékk ég 8 í Sálfræði fullorðinsára. 
Haldið þið að mín sé ekki komin í sumarfrí Já, búin að vinna
í 4 vikur og er strax komin í sumarfrí. Svolítið skrýtið en samt
frábært því að Gunnar Freyr er byrjaður á leikskólanum og hef því
betri tíma til þess að aðlaga hann. Hann er svo duglegur, honum
finnst geggjað gaman að leika við krakkana Var í fyrsta
skipti án okkar á leikskólanum í dag og það var ekkert mál. Á
morgun förum við í lengri tíma í burtu. Svo byrjar hann alveg á
mánudaginn eða þriðjudaginn. Hann er svo mikill gullmoli 
Ég, Doddi og Gunnar Freyr vorum öll lasin í síðustu viku og fram
til þriðjudags, svakaleg flensa. Hiti, beinverkir, hálsbólga og
eyrnabólga, ekki skemmtilegt. En erum öll búin að ná okkur ágætlega
þó svo að hálsbólgan og eyrnabólgan séu smá til staðar. Við þurfum
bara að passa okkur vel því að við viljum ekki fá þessa flensu
aftur 7 9 13.....
Vildi bara skrifa smá fréttir af okkur....
Skrifa bráðlega aftur
Kveðja Sóley
»
05.05.2007 21:44:40 / soleygunn
Það er allt frábært að frétta af mér. Ég er byrjuð að vinna
aftur eftir 14 mánaða frí. Fyrsti vinnudagurinn var í gær og verð
ég að vinna frá klukkan 8 til 1. Það var nú svolítið skrýtið að
vakna og drífa sig út þegar maður er búin að vera bara á
náttfötunum og hafa það kósý heima með prinsinum. En þetta leggst
mjög vel í mig, hlakka til að fá rútínu á daginn en Gunnar Freyr
byrjar vonandi á leikskóla enda mánaðarins. Hann mun fara á
leikskólann klukkan hálf átta, ég í vinnu og þegar ég er búin að
vinna þá fer mín heim að læra og mun sækja hann fyrir klukkan 4.
Fannst fyrst hræðilegt að hann myndi vera á leikskólanum svona
lengi yfir daginn en ég held að það sé fyrir bestu að vera
búin að læra þegar hann kemur heim. Því þá getum við átt góðar
stundir saman án þess að vera að stressa sig í að læra 
Gunnar Freyr var lasinn um daginn í alveg 2 vikur. Hann byrjaði
að vera lasinn á afmælisdaginn sinn og fékk þá hita. Seinna fékk
hann svona mikla eyrnabólgu og hálsbólgu en fékk sýklalyf. Nú er
hann búinn að vera hitalaus í nokkra daga og búinn á
sýklalyfinu. Hann reyndar er búinn að vera svolítið pirraður í dag
og í gær en ég held að það sé nú bara tennurnar. Er að fá fleirri
en hann er kominn með 7 tennur 
Prófin eru byrjuð en vegna þess að ég gat lítið lært þegar
Gunnar Freyr var lasinn þá fór ég ekki í eitt próf og því tek ég
það í ágúst. Svolítið leiðinlegt að þurfa að læra í sumar en ég
skipulegg mig bara vel þá verður þetta ekkert mál Skilaði
stórri riitgerð í gær og er að fara í eitt próf á
miðvikudaginn.
Hlakka svo til þegar prófið er búið. Ætla að hafa það gott í
sumar, reyna að fara í einhver ferðalög, mála grindverkið
heima og vera mikið úti. Vonandi verður bara gott veður svo að
prinsinn geti nú verið mikið úti, því að hann er algjör útikall
Elska hann út af lífinu 
Jæja, þetta er nú orðin meiri langlokan......
Bæjó
»
17.04.2007 09:44:44 / soleygunn
Gullmollinn okkar á afmæli í dag Hann er orðinn eins
árs, það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.
Kveðja Sóley
»
07.04.2007 17:18:14 / soleygunn
Ég á afmæli í dag, orðin 25 ára Vá, það er aldeillis. Orðin
bara gömul.....hahaha....ekkert of samt...
Ég hélt afmælið mitt í gær og ég skemmti mér rosalega vel. Vona
að allir hafi líka skemmt sér vel. Takk æðislega fyrir mig

Ætla að fara að borða góðan mat og hafa það kósý
Heyrumst
»
02.04.2007 15:04:58 / soleygunn
Það er alveg að koma páskar og þá verður heldur betur tekið sér
frí hvað varðar allan lærdóm Er búin að vera á fulla að læra í
eina viku og var að senda áðan tvö stór verkefni, víííí, það er svo
gaman þegar maður er búin.
Mín ætlar að halda upp á afmælið sitt um helgina en þá verð ég
25 ára. Það verður bara gaman 
Það er allt gott að frétta af okkur fjölskyldunni. Það er ekki
nema 2 vikur þangað til að litli gullmolinn okkar verður 1 árs. Það
er ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, finnst eins og ég hafi
verið á fæðingardeildinni í gær.
Jæja, nenni ekki að skrifa meira.
Gleðilega páska og hafið þið sem allra best, alltaf
»
09.03.2007 15:52:48 / soleygunn
Bara fyndið......
Gestir í líkamsræktarstöðinni Laugum í
Laugardal urðu vitni að óvæntri uppákomu nú fyrir skemmstu,
uppákomu sem ekki áttu að vera vitni að. Fyrir þá sem ekki þekkja
til í Laugum þá er líkamsræktarstöðinbyggð við sundlaugina í
Laugardal og geta gestir brugðið sér milli ræktar og laugar eftir
hentugleika. Hlaupabrettin í Laugum skipta svo tugum og eru á
annatíma þétt skipuð. Þau eru staðsett þannig að við
blasir sundlaugin en litað gler gerir það að verkum að
gestirnir í líkamsræktarstöðinni sjá sundlaugargestina en
sundlaugargestirnir sjá ekki gestina á hlaupabrettunum. Í fyrradag
gerðist það svo að par á besta aldri sást rölta í rólegheitunum upp
úr sundlauginni og hverfa í skjól, þ.e.a.s. í hvarf við
sundlaugina. Parið sat um stund og gáði hvort það sæist frá
sundlauginni og hófst svo handa við innileg atlot. Þau atlot enduðu
svo með holdlegri sameiningu.Það sem parið áttaði sig ekki, var að
þó þau væru í skjóli frá sundlaugargestum, þá blöstu við þau öllum
í íkamsræktarstöðinni.
Segja vitni að atburðinum að talsverð “stemmning” hafi myndast á
hlaupabrettunum við þessa óvæntu “uppákomu”, meðal annars blístur
og húrrahróp. Parið lauk hins vegar við sitt í rólegheitum án þess
að hafa hugmynd um að fjöldi áhorfenda hefði verið að
atlotunum.
Góða helgi
»
02.03.2007 22:29:37 / soleygunn
Allt gott að frétta á mínum bæ. Er reyndar
að drukkna í verkefnavinnu í skólanum.....en þetta tekur bráðum
enda og ég get ekki beðið Sé mig alveg fyrir þegar skólinn er
búinn, þá kemur sumar og vonandi sól. Þá verður sko gaman, að fara
út að leika við litla prakkarann og þurfa ekki að læra neitt.
Þá ætlar mín sko að njóta sín í botn í faðmi
fjölskyldunnar.
Gunnar Freyr fór til eyrnalæknis í dag út af
vökvanum í eyrunum. Læknirinn sagði að það væri svo lítill vökvi að
það þyrfti ekki að gera neitt. Hann þarf bara að vinna úr þessu
sjálfur en ef að hann myndi versna þá ættum við að koma aftur. Við
erum svo glöð að hann þurfi ekki að fá rör og vonum að hann vinnu
úr þessu. Það er bara svo sárt að vita af því að honum er illt því
að hann grætur stundum mikið, klíppur í eyrun sín og á erfitt með
að festa svefn. En svona er þetta bara, ekkert hægt að
gera.
Það er svo skrýtið að hugsa til þess að
gullmolinn okkar verður 1 árs í næsta mánuði, þetta er svo ótrúlega
fljótt að líða. Áður en maður veit af, þá á maður eftir að sitja í
ruggustólnum að prjóna vettlinga á barnabarnabörnin sín (vona að ég
kunni þá að prjóna) hehehe
Tökum bara einn dag í einu og njótum hans í
botn
»
07.02.2007 13:57:47 / soleygunn
Heil og sæl
Allt ágætt að frétta af okkur. Gunnar Freyr er samt búin að vera
meira og minna lasinn í rúmar 3 vikur. Það er eins og hann ætli
ekki að ná þessu úr sér, þessi elska. Er núna búin að vera hitalaus
í 5 daga og fór í fyrsta skiptið út í vagn í dag síðan að hann
veikstist. Það er bara vonandi að hann verði ekki aftur veikur.
Ég er búin að vera að reyna að læra en það er búið að ganga hálf
hægt á meðan hann að hann var veikur en nú get ég lært aðeins
meira.
Erum að fara í afmæli til Hrenfu og Beggu um helgina. Þær eru 25
ára og ætla því að halda þessi 50 ár samtals saman....heheheh....
Mamma og pabbi ætla að passa litla kút og við ætlum sko að njóta
þess. 
Jæja, ætla nú að fara að læra svo að ég nái upp því sem ég er
búin að missa af...
Kveðja Sóley
»
23.01.2007 14:21:06 / soleygunn
Gunnar Freyr er búinn að vera lasinn.
Hann rauk upp í 40 stiga hita um daginn en nú er hann ekki
með nema nokkrar kommur. Erum að fara með hann til læknis á
eftir því að hann er farinn að hósta svo mikið og svo vill
hann ekki borða né drekka mikið.
Annars er allt ágætt að frétta af okkur. Gunnar
Freyr er orðinn 9 mánaða og hann er farinn að standa upp, skríða og
gera svo margt. Það er æði Ég er byrjuð í skólanum á fullu, náði
öllu fyrir áramót. Rosalega ánægð Er ekki enn farinn í ræktina,
finnst svolítið erfitt að fara frá prinsinum þegar hann er veikur.
Byrja á fullu þegar hann er orðinn betri 
Ætla að fara að læra smá, meðan að gullmolinn
sefur.
Heyrumst
»
11.01.2007 16:11:29 / soleygunn
Gleðilegt ár öllsömul og takk fyrir það gamla 
Þá er mín byrjuð aftur í skólanum. Nú ætla ég að taka 4 fög og
það stefnir á það að ég taki 2 próf í mai. Það er ágætt því að ég
tók 5 fög síðast og fór í 4 próf. Það er aldeilis sem að kennarar
fá langa tíma í að fara yfir próf. Á enn eftir að fá eina einkunn
og það í erfiðasta prófinu en það kemur í ljós hvernig það fer. Mér
gekk vel í hinum fögunum og útkoman var svona: Inngangur að
uppeldisvísindum 8. Aðferðir í starfi með fötluðum
7,5. Fötlun og taugasjúkdómar 6. Óhefðbundnar
tjáskiptaleiðir 8,5. Ég er mjög ánægð með útkomuna og vona
innilega að ég nái hinu faginu sem er Geðraskanir.
Ég er ekkert búin að hreyfa mig né passa mataræðið síðan 16
desember en nú ætlar mín að halda áfram. Var búin að missa um 9 og
hálft kíló fyrir jól en fór á vigtina í gær og er búin að bæta á
mig einu kílói Enda mín ekkert búin að vera dugleg í mataræðinu
um jólin..... Nú verður bara tekið á því og stefna á næsta markmið
sem er að losna við 6 til 8 kíló fyrir afmælið mitt sem verður 7
apríl 
Það er allt gott að frétta að okkur litlu fjölskyldunni
Gunnar Freyr er að verða 9 mánaða, áður en við vitum af þá verðum
við að halda 1 árs afmælið hans. Rosalega fljótt að líða. Hann fór
í sprautu og skoðun í morgun og gekk það mjög vel. Pabbi hans fór
einn með hann því að ég var í skólanum og hann sagði að hann hafi
nú samt farið að gráta smá en það var búið strax. Læknirinn var
ekki alveg ánægður með þyngdina hjá Gunnari Frey, hann hafði aðeins
þyngst um 200 grömm á 2 mánuðum. Þegar Doddi sagði mér það þá leið
mér hræðilega illa, því að Gunnar Freyr er búin að vera smá
pirraður á daginn og ég alltaf að reyna að finna út hvað væri að.
Svo er hann bara svangur þessi elska, það er svona, maður getur
ekki vitað allt. Þannig að nú þurfum við að gefa honum meira að
borða, þó svo að hann borðar alltaf mjög vel og einnig mikið. Það
er kannski ekki skrítið að hann þurfi að borða meira því að hann er
algjör orkubolti 
Verið jákvæð, góð og njótið lífsins
Kveðja Sóley
»
02.01.2007 00:55:12 / soleygunn
Elsku besta systir mín á afmæli í dag Til hamingju með
afmælið Helga okkar, við elskum þig.
Mamma og pabbi eru út á Kanarý til að fagna 50 ára afmæli hjá
þeim báðum. Til hamingju með það. Þið eruð best og við elskum
ykkur. Hlökkum til að sjá ykkur á fimmtudaginn 
Kveðja Sóley, Doddi og Gunnar Freyr
P.s. Klukkan er vitlaus í tölvunni hjá mér, hún er hálf tólf
þannig að það er enn 1 jan 
»
15.12.2006 22:54:14 / soleygunn
Jæja, þá eru prófin búin Rosalega er ég glöð, nú getum við
fjölskyldan farið í jólastuð. Farið að kaupa jólagjafir,
skreyta og haft gaman. Mér gekk ágætlega í prófunum samt er
svolítið erfitt að segja til um það. Þetta kemur allt saman í ljós,
er alveg sátt þar sem ég gerði mitt besta Elskan mín, hann Doddi
tók 2 vikur í fæðingarorlof á meðan að ég var í prófunum svo að ég
gæti einbeitt mér algjörlega að lærdómnum.
Ég fór í mælingu á miðvikudaginn þar sem þetta námskeið er búið.
Ætla að byrja aftur eftir áramót en ætla samt að passa mig í
mataræðinu um jólin, þó svo að það verði nú borðað eitthvað
gott og hreyfa mig með því að fara út að labba eða í
sund. Ég er svo stolt af mér. Á 14 vikum hef ég losnað við
8,6 kíló, 4% fitu og 43 cm Ég ætla mér að halda áfram og ná mínu
markmiði.
Jæja...nenni ekki að skrifa meira núna.
Hafi þið það sem allra best um jólin
Jólakveðja Sóley
»
10.12.2006 23:02:32 / soleygunn
Sit hér og er að reyna að læra :/..... Það er pínu óþægilegt
þegar maður lendir í því að vilja gera gjörsamlega allt annað en að
læra....en svona er það víst.
Það er ekki mikið eftir og verð ég að leyfa öðru að bíða eins og
að þrífa heimilið, skreyta, skrifa jólakort eða versla
jólagjafir. Í dag leyfði ég mér nú samt að fara með litlu
sætu fjölskyldunni minni í bónus svo fengum við okkur að borða
og skoðuðum jólaljósin í bænum. Það var æðislegt.
Ég er búin með 2 próf og ég á 2 eftir. Á föstudaginn
klukkan 12 þá verður mín búin....vei..vei..vei. Það hefur gengið
ágætlega en samt veit ég ekki hvort að ég nái öllu en það verður
bara að hafa það, ég hef einn upptekurétt. Ég geri mitt besta, ég
get ekki gert betur 
Það skemmtilegast sem er búið að gerast á mínum bæ er að litli
gullmollinn okkar er farinn að skríða Þegar ég
kom heim eftir próf á fim þá segir Doddi við mig að hann haldi að
Gunnar Freyr sé farinn að skríða. Þá var hann upp í rúmi með pabba
sínum og var að reyna að koma sér áfram. Við settum hann á gólfið,
hann fór á magann og byrjaði minn ekki bara að skríða. Hann skríður
þannig að hann notar hendurnar og spyrnir með fótunum, algjör
draumur. Við erum svo montinn af honum 
Mataræðið hefur nú ekki verið upp á sitt besta þessa daga,
svolítið erfitt að stjórna sér þegar maður situr við tölvuna og
bækurnar alla daginn....en ég ætla mér að laga það. Fór á vigtina á
fös en hún sýndi að ég er búin að losna við 8 kíló og er ég
mjög stolt af því. Veit ekki með cm né fituprósentuna en á fim er
síðasti tíminn í aðhaldinu mínu fyrir jól og þá fæ ég að vita hvað
ég er búin að missa....spennandi.....
Jæja....var ég ekki að tala um hvað það væri óþægilegt að vilja
gera allt annað en að læra.....hvað er mín að gera nú.....ekki að
læra :/
Þannig að nú ætla ég að halda árfam.
Farið aldrei að sofa ósátt.......það geri ég aldrei 
»
Síður: 1 2 3 4
|
|